Sækja um aðild

Rétt að aðild að Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni hafa þau er sannarlega hafa unnið að a.m.k. tveimur kvikmynda- og/eða sjónvarpsverkefnum í einni af eftirfarandi deildum síðastliðin fimm ár, nema annað komi fram.


Athugið að með kvikmynda- eða sjónvarpsverkefnum er átt við verk sem hafa verið sýnd í íslensku kvikmyndahúsi eða á íslenskri kvikmyndahátíð þar sem almenningi hefur gefist kostur á að mæta (þ.e. sýningin hefur verið í auglýstri dagskrá kvikmyndahússins / hátíðarinnar) og/eða á miðli með umtalsverða dreifingu. Til að stuttmyndir teljist sem gild verk þurfa þær að hafa verið sýndar á alþjóðlegri A-lista hátíð, unnið til verðlauna á Stockfish eða RIFF, og eða hlotið tilnefningu til Edduverðlauna.


Fullfjármögnuð verk í vinnslu geta talist með hjá framleiðenda, handritshöfundi og leikstjóra. Eitt verk þarf þá allavegana að hafa verið sýnt nú þegar og útskýring skal send í tölvupósti með staðfestingu á stöðu verksins í vinnslu.


Deildir og aðildarkröfur:


Áhættuleikur

Samhæfing áhættuatriða, áhættugripill, og áhættuleikari. 

Brellur

Brellumeistari, brellur á setti, aðstoð við brellur og vopnavörður.

Búningar

Búningahönnuður, búningastjórn, búningabrellur, aðstoð við búninga, klæðskeri og búninga samhæfingarstjórn. 

Eftirvinnsla

Framleiðandi eftirvinnslu, framkvæmdastjóri eftirvinnslu, skipulagsstjóri eftirvinnslu, grafískur hönnuður, litaleiðréttari, og textun.

Farartæki og aðstaða

Farartækjastjóri, samhæfingarstjórn farartækja, aðstöðustjóri, samhæfingastjórn ferða og rafstöðvarstýring. 

Framleiðandi

Framleiðandi, meðframleiðandi, og yfirframleiðandi.

Framleiðsla

Aðstoðarleikstjóri, framleiðslustjóri, framkvæmdastjóri, samhæfingastjóri framleiðslu, skipulagsstjóri, annar aðstoðarleikstjóri, aðstoð við framleiðslu og aðstoð á setti. 

Gagnrýnendur

Gagnrýnendur og fjölmiðlamenn sem fjalla um menningu. Senda þarf tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu, ásamt sýnidæmum.

Handrit

Handritshöfundar, dramatúrg, og leiðbeinendur.

Hár og förðun

Hár og förðun á setti, förðunarfræðingur, leikgervahönnuður, gervahönnuður, aðstoðar förðunarfræðingur, aðstoðar hárgreiðsla, og hár og förðunar samhæfingarstjórn.

Hljóð

Hljóðhönnuður, hljóðblöndun, hljóðupptökustjórn, bómustjórn, bóma á setti, klipping samtala, SFX hljóðupptaka, klipping á hljóðbrellum, foley hönnuður, og foley upptaka. 

Hreyfingar

Danshöfundur, hreyfingarþjálfi og sviðsetning. 

Klipping

Klippari og aðstoðarklippari.

Kvikmyndahátíðir   

Framkvæmdastjórar og dagskrárstjórar kvikmyndahátíða. Senda skal tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu.

Kvikmyndahús   

Eigendur, framkvæmdastjórar, dagskrárstjórar, vaktstjórar og tæknimenn kvikmyndahúsa í fullri vinnu. Senda þarf tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu.

Kvikmyndataka 

Stjórnandi kvikmyndatöku, kvikmyndataka, aðstoðartökumaður, annar aðstoðarökumaður, gagnastjóri, tökumaður í lofti og ljósmyndari á setti. 

Leiklist

Leikarar og aukaleikarar.

Leikstjórn

Leikstjórar, leikaraval, skrifta, nándarþjálfi og aðstoð við leikaraval. 

Leikmyndadeild

Leikmyndahönnuður, deildarstjóri leikmyndadeildar, leikmyndamálari, stílisti leikmyndar, leikmyndaskreytingarstjóri, leikmyndaskreytir, leikmunameistari, leikmunavörður, umsjón leikmuna á setti, aðstoð í leikmyndadeild, samhæfingarstjórn í leikmunadeild og grafík.

Ljósadeild & gripill

Ljósameistari, ljósamaður, aðalgripill, vagnstjóri og gripill. 

Sjálfbærni

Sjálfbærnistjórn, samhæfingarstjórn og sjálfbærni á setti. 

Sjónvarpsútsendingar

Upptökustjóri, aðstoðarupptökustjóri, tökumaður, hljóðmaður, leikmyndahönnuður, leikmunavörður, hár og förðun, tæknistjóri, sviðsmaður, og myndblöndun.

Starfsfólk framleiðslufyrirtækja og tækjaleiga                                                                                                                                 

Starfsfólk í fullri vinnu hjá framleiðslufyrirtæki eða tækjaleigu. Senda þarf tölvupóst með ferilskrá og eða vinnulýsingu.

Tölvubrellur

Stjórnandi tölvubrellna, yfirmaður tölvugerðra mynda, tölvubrellur listamenn, hreyfimyndir, umsjón með VFX verkferlum, grafísk samsetning, eltihreyfing, samhæfingarstjóri tölvubrellna, yfirmaður tölvugerðra mynda, lýsing og myndþýðing, hermun, stafrænn málari og stuðningur við stafræna myndvinnslu. 

Tökustaðir

Tökustaðastjóri, aðstoðar tökustaðastjóri, tökustaðaleit, aðstoð við tökustaði, samhæfing tökustaða og öryggisstjóri. 

Tónlist

Tónskáld, tónlistarráðgjafar, og umsjónaraðilar tónlistarréttinda. 

Umboðsaðili

Umboðsaðilar og fjölmiðlafulltrúar með íslenska kúnna. 



Á kjörskrá vegna Edduverðlaunanna hverju sinni eru aðeins þeir meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem hafa greitt félagsgjöld ÍKSA það árið. Þeir sem ekki eru á kjörskrá geta farið á eddan.is, skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og greitt félagsgjöldin, fyrir auglýstan frest.


Kærur, er varða kjörskrá ef einhverjar eru, skulu berast ÍKSA ásamt skriflegum rökstuðningi. Stjórn ÍKSA fjallar um kærur sem kunna að berast.

Ef þú hefur ekki sótt um aðild að Akademíunni en telur þig uppfylla skilyrðin til að vera þar þá endilega fylltu út formið hér að neðan.

Athugaðu að einhver tími getur liðið frá innsendingu umsóknar og þangað til fjallað verður um umsóknina þína.

Þeir sem sækja um eftir 29. mars 2026 verða ekki gjaldgengir í rafræna kosningu Edduverðlaunanna.

Sækja um